Um ljósmyndina, höfundinn & annan óþjóðalýð
Ljósmyndin hér að ofan er tekinn með NOKIA-MXZ 200 vél með H3MAX aðdráttarlinsu í nágrenni Arendal, í Noregi. Höfundur hennar er , alias Petersen, illræmdur paparazzi-ljósmyndari, og annar af tveimur sem náðu að flýja af vettvangi eftir dauðaslys Díönu prinsessu í París. Hann er nú eftirlýstur af INTERPOL fyrir margvísleg fólskuverk, en þó einkum fyrir að féfletta einmana miðaldra konur með fagurgala sínum og rómuðum kynþokka.
Téður Arinbjörn, einnig þekktur sem Jarlinn, Skati, og stundum Skatilókur meðal samverkamanna í undirheimum, er talinn vera í felum einhvers staðar nálægt Rottne í Smálöndunum í Svíþjóð. Samkvæmt heimildum frá Mossad, leyniþjónustu Ísraelsstjórnar, býr hann þar með eiginkonu sinni til margra ára, . Um Jóhönnu þessa má lesa í skýrslu Fox Mulder´s "The only X-File I don´t want to believe". Það eina sem alríkislögreglumaðurinn Fox Mulder gat stunið upp þegar ég tilkynnti honum að Jóhanna væri ennþá á lífi var: "Oh, no, don´t say it´s true!" og síðan: "God Save Us All!"
Báturinn sem höfundur matflagar á er talinn vera eign nokkurs . Um hann er fátt vitað en miðað við félagsskapinn verður að áætla að maðurinn sé mjög varhugaverður. Um höfundinn er það eitt að segja, að samkvæmt nýjustu heimildum, er hann ásamt bróðir sínum , alias Bói, stundum Einar, einhvers staðar í Suður-Ameríku eða Ástralíu á æðisgengnum flótta undan eiginkonum og barnsmeðlögum, og án efa að undirbúa eitt bankaránið í viðbót.